139. löggjafarþing — 123. fundur,  12. maí 2011.

rannsókn á athöfnum þingmanna í tengslum við búsáhaldabyltinguna í janúar 2009.

209. mál
[17:10]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (andsvar):

Forseti. Nú er ég hissa því að á máli þingmannsins Jóns Gunnarssonar var ekki annað skilja en hann teldi að þingmenn hefðu beitt ofbeldi hér þessa örlagaríku daga, ég get ekki skilið orð hans öðruvísi, eða átt verulegan þátt í ofbeldi. Mér finnst þingmaðurinn þurfa að skýra þetta betur en það að einhver hafi talað í síma og steytt hnefa út í glugga.