143. löggjafarþing — 123. fundur, 18. júní 2014.
frestun verkfallsaðgerða Flugvirkjafélags Íslands gegn Icelandair.
616. mál
Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hv. þm. Ögmund Jónasson einnar spurningar. Hann var fjarverandi hér þegar lög voru sett á flugvirkja árið 2010. Hann lýsti því yfir í upphafi ræðu sinnar að hann segði nei við þessum lögum. Ef hann hefði verið viðstaddur hefði hann gert slíkt hið sama 2010 og hann sagði í upphafi ræðu sinnar, hefði hann sagt nei?