139. löggjafarþing — 124. fundur, 16. maí 2011.
umfjöllun umhverfisnefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Forseti tilkynnir að með bréfi dags. 12. maí hefur forseti óskað eftir því við umhverfisnefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sorpbrennslur með undanþágu frá tilskipun ESB. Þetta er í samræmi við reglur um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar sem forsætisnefnd samþykkt 12. febrúar 2008.