132. löggjafarþing — 124. fundur, 3. júní 2006.
almannatryggingar.
792. mál
Frú forseti. Við greiðum atkvæði um breytingartillögu sem var verið að dreifa og það er ekki einu sinni gert hlé á atkvæðagreiðslunni þannig að við getum gengið fram og lesið hana.