149. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2019.

rannsókn kjörbréfs.

[13:35]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá varaformanni þingflokks Miðflokksins um að 6. þm. Suðvest., Gunnar Bragi Sveinsson, geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því er óskað eftir að í dag taki Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir sæti á Alþingi en hún er 3. varamaður á lista Miðflokksins í kjördæminu. Varamenn ofar á lista hafa boðað forföll.

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kjörbréfið.