149. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2019.

rannsókn kjörbréfs.

[13:36]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd mælir einróma með samþykkt kjörbréfsins og telst það samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, 6. þm. Suðvest., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]