139. löggjafarþing — 125. fundur,  17. maí 2011.

uppbygging á friðlýstum svæðum.

[14:32]
Horfa

umhverfisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ástæðan fyrir því að sú sem hér stendur tekur sér tíma í að fara yfir samninginn er sú að mér ber að gera það að lögum. Ég vænti þess að þingmaðurinn sé sammála mér um að mér beri að gera það vel og vanda þá yfirferð og það er ég að gera.