138. löggjafarþing — 128. fundur, 31. maí 2010.
lengd þingfundar.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Forseti mun síðan hitta þingflokksformenn síðar í dag og ræða fyrirkomulag þinghaldsins. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um tillögu forseta? Svo er ekki og skoðast hún samþykkt.