138. löggjafarþing — 129. fundur,  1. júní 2010.

tilkynning um dagskrá.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um klukkan 2 í dag, að loknum dagskrárliðnum um störf þingsins, fer fram umræða utan dagskrár um árás ísraelsks herskips á skipalest með hjálpargögn. Málshefjandi er hv. þm. Ögmundur Jónasson. Utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.