138. löggjafarþing — 129. fundur,  1. júní 2010.

störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég kem upp til að ræða vinnubrögð á Alþingi Íslendinga. Við þingheimur njótum nú afskaplega lítils trausts hjá þjóðinni. Við stöndum í mjög erfiðum málum, erum með mörg þung mál í nefndum, en það er mjög athyglisvert að á fjölda nefndarfunda vantar þó nokkurn fjölda þingmanna. Við sitjum fáliðuð yfir stórum og alvarlegum málum og það vantar mannskap í nefndirnar. Ég kem því hingað, frú forseti, til að beina því til forsætisnefndar að skoðað verði hvort ekki sé ástæða til að breyta nefndarskipan. Ég trúi því ekki að þingmenn geri það að gamni sínu að mæta ekki á nefndarfundi. Ég geri ráð fyrir því að þeir sem mæta ekki á fundina séu á öðrum nefndarfundum á þeim tíma, en einhvern veginn er skipulaginu svo háttað á þinginu að við vinnum allt of fáliðuð í mjög mikilvægum málum. Ég held að það sé ólýðræðislegt. Ég held að það séu ekki vönduð vinnubrögð. Ég held að það sé betra að fleiri komi að málum.

Ég velti því líka upp við forsætisnefnd hvort ástæða sé til þess að opinberlega væri hægt að sjá hverjir mæta á fundi og fjalla um málin, að það komi ekki bara fram á nefndarálitum. Ég ætla ekki að fara að beita svipu á þingmenn en þetta er okkur mörgum þingmönnum, ekki síst þeim sem eru nýir þó að þetta eigi ekki síður við um þá sem hafa verið hér lengur, mikil getgáta að hér séu nefndarfundir með fimm þingmönnum kannski í stað níu. Og stundum er minni hlutinn í meiri hluta.