149. löggjafarþing — 129. fundur,  20. júní 2019.

þingfrestun.

[20:19]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 149. löggjafarþings, frá 20. júní 2019 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 28. ágúst 2019.

Gjört í Reykjavík, 19. júní 2019.

Guðni Th. Jóhannesson.

________________

Katrín Jakobsdóttir.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

 

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis fyrr í dag lýsi ég yfir því að fundum Alþingis, 149. löggjafarþings, er frestað. Ég óska hv. alþingismönnum, starfsfólki þingsins og landsmönnum öllum hamingjuríkra sumardaga.