150. löggjafarþing — 129. fundur,  29. júní 2020.

atvinnuleysistryggingar.

812. mál
[11:19]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Við munum sitja hjá í þessu máli. Við teljum nauðsynlegt að endurskoða þessi lög í heild þar sem flækjustigið er orðið töluvert og vinda þarf ofan af því, sérstaklega í ljósi síðustu atburða í kórónuveirufaraldrinum og alls sem birtist okkur þar.