150. löggjafarþing — 130. fundur,  29. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[21:31]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Herra forseti. Það er mjög mikið fagnaðarefni að við séum nú að greiða atkvæði um þetta mál því að líkt og hér hefur komið fram þá mun þetta skipta miklu máli fyrir lífsgæði íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Við förum að sjá miklu öflugri almenningssamgöngur og síðast en ekki síst mun þetta skipta mjög miklu máli þegar kemur að loftslagsmálunum og að við getum náð betri árangri þar sem fjölbreyttari og umhverfisvænni ferðamátar verða til staðar.

Ég segi því já með glöðu geði.