150. löggjafarþing — 130. fundur,  30. júní 2020.

mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna til þátttöku í samfélaginu.

38. mál
[00:12]
Horfa

Frsm. velfn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna til þátttöku í samfélaginu.

Undir þetta nefndarálit ritar öll hv. velferðarnefnd, þ.e. sú sem hér stendur, hv. þm. Ásmundur Friðriksson, Anna Kolbrún Árnadóttir Bryndís Haraldsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Halldóra Mogensen og Orri Páll Jóhannsson, en að auki er hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson, áheyrnarfulltrúi Viðreisnar í nefndinni, samþykk áliti þessu.

Með umræddri þingsályktunartillögu, sem flutt var af hv. þm. Guðjóni Brjánssyni, er lagt til að mótuð verði stefna fyrir einstaklinga og fjölskyldur af erlendum uppruna með það að markmiði að auka gagnkvæman skilning og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins.

Samkvæmt tölum Hagstofunnar hefur innflytjendum á Íslandi fjölgað stöðugt undanfarin ár. Árið 2012 voru innflytjendur 8% landsmanna en eru nú 14,1% samkvæmt tölum Hagstofunnar frá 1. janúar 2019. Að sama skapi hefur innflytjendum af annarri kynslóð fjölgað og hlutfall fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjenda hefur aldrei verið hærra.

Mikilvægt er að huga að velferð þessa vaxandi hóps. Aðlögun og þátttaka í samfélaginu er lykilþáttur í velferð innflytjenda sem best verður tryggð með greiðum aðgangi að öllum þáttum samfélagsins.

Við meðferð málsins var samhljómur meðal gesta um að mikilvægt væri að taka málaflokkinn til endurskoðunar í heild sinni.

Í umsögn Rauða kross Íslands kom fram að horfa þyrfti til allra sviða samfélagsins og tryggja að ný stefna hvíldi á vel ígrundaðri framtíðarsýn með það að markmiði að stuðla að samfélagi jafnra tækifæra fyrir alla svo ekki væri hætta á að hér á landi mótaðist tvískipt samfélag, þar sem innflytjendur skipa lægstu lög samfélagsins og hafa litla möguleika á félagslegum hreyfanleika og á því að nýta til fulls menntun sína, færni og hæfileika. Þá kom fram að unnið væri að þriggja ára áætlun á vegum Sameinuðu þjóðanna um aukna aðstoð við flóttafólk og örugga för þess í skjól. Það komu fram fleiri umsagnir.

Við meðferð málsins var bent á þær hindranir sem standa í vegi menntaðra innflytjenda þegar kemur að atvinnuþátttöku. Þegar kemur að námskeiðum og að efla íslenskukennslu var bent á að efla þyrfti nýbúabraut Tækniskólans og fjölga plássum fyrir ungmenni sem búa yfir engri eða lítilli íslenskukunnáttu. Bent var á að efla þyrfti íslenskukennslu á vinnustöðum og auka fræðslu um réttindi á vinnumarkaði. Loks væri nauðsynlegt að tryggja aðgang að túlkaþjónustu á öllum sviðum.

Nefndin tekur undir þau sjónarmið sem henni bárust og komu fram hjá gestum og leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.