150. löggjafarþing — 130. fundur,  30. júní 2020.

náttúrustofur.

103. mál
[00:27]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um tillögu til þingsályktunar um náttúrustofur frá umhverfis- og samgöngunefnd. Eins og hæstv. forseti sagði þá liggur nefndarálitið fyrir á þskj. 1867 og tillagan upphaflega er á þskj. 103 og málið er nr. 103. Það er svo skemmtilegt að þetta passar saman þannig að ég verð að geta þess.

Umhverfis- og samgöngunefnd hefur fjallað um málið og fengið til sín gesti. Hún byggði umfjöllunina á umsögnum sem höfðu borist á 149. löggjafarþingi og 145. löggjafarþingi, en þá var málið flutt áður.

Með þingsályktunartillögunni er lagt til að umhverfis- og auðlindaráðherra komi á fót starfshópi til að meta reynsluna af starfi náttúrustofa og kanna hvort hagkvæmt sé að náttúrustofur taki formlega að sér fleiri svæðisbundin verkefni en þær hafa nú með höndum. Starfshópnum verði falið að móta leiðir til að styrkja samstarf náttúrustofa og stofnana ríkisins í þeim tilgangi að nýta fjármagn til þekkingaröflunar og vöktunar á náttúru landsins sem best og til að auka skilvirkni í samstarfi um náttúruvernd.

Fyrir nefndinni kom fram almenn ánægja með efni tillögunnar og sérstaklega var tekið undir það markmið hennar að mikilvægt væri að auka enn frekar samstarf náttúrustofa og ríkisstofnana í tengslum við umhverfis- og auðlindamál. Það gæti tryggt fjölbreyttari mannauð á landsbyggðinni og nýst á margvíslegan hátt, t.d. við þekkingaröflun og þegar náttúruhamfarir eiga sér stað. Nefndin tekur undir þau sjónarmið og telur að í því geti falist mikil sóknarfæri og hagkvæmni, einkum þar sem sérfræðiþekking er dreifð víða um land. Þá bendir nefndin á að við skoðun á samstarfi náttúrustofa við ríkisstofnanir mætti auka samstarf við stofnanir sem heyra undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið og horfa til möguleika á samstarfi við háskólastigið og sjávarútvegs- og landbúnaðargeirann.

Nefndin fjallaði einnig um mikilvægi þess að starfshópurinn samanstæði m.a. af fulltrúum sem þekktu vel til starfsemi náttúrustofa, þekkingar- og rannsóknastarfsemi á landsbyggðinni og að samráð yrði haft við sveitarfélög við gerð tillagnanna.

Nefndin lítur svo á að leiði vinna starfshópsins í ljós að lagabreytinga sé þörf, til að skýra hlutverk og samstarf stofnana, geti hópurinn komið fram með slíkar tillögur til ráðherra varðandi samstarf um rannsóknir, vöktun, náttúruvernd o.fl.

Nefndin telur nauðsynlegt að setja vinnunni tímamörk og leggur áherslu á að starfshópurinn verði skipaður sem fyrst og leggur til þá breytingu að hann ljúki störfum og skili tillögum til ráðherra fyrir 1. desember 2020.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með þeirri breytingu sem ég gerði grein fyrir.

Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Bergþór Ólason formaður, Líneik Anna Sævarsdóttir framsögumaður, Brynjar Níelsson, Guðjón S. Brjánsson, Hanna Katrín Friðriksson, Karl Gauti Hjaltason, Kolbeinn Óttarsson Proppé og Ólafur Þór Gunnarsson. Hv. þm. Vilhjálmur Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Að lokum vil ég bara segja að það er mér mjög mikið fagnaðarefni að þessi tillaga skuli nú vera komin hér til afgreiðslu. Eins og fram kom þá hef ég verið 1. flutningsm. á þessari tillögu á fyrri þingum og fagna því mjög og legg til að hún verði samþykkt hér.