131. löggjafarþing — 132. fundur, 11. maí 2005.
Samgönguáætlun fyrir árin 2005--2008.
721. mál
[11:41]
Jóhanna Sigurðardóttir (Sf) (um fundarstjórn):
Ég vil að það sé rækilega undirstrikað og komist inn í Alþingistíðindi að ég tel að forseti hafi kveðið upp rangan úrskurð sem ég er ósátt við. Það mun auðvitað síðar koma í ljós ef menn liggja yfir þessu að þó að forsetinn hafi úrskurðarvald hefur hann kveðið upp rangan úrskurð.