139. löggjafarþing — 134. fundur, 27. maí 2011.
þinghaldið fram undan.
Forseti vill geta þess að fundur þingflokksformanna stendur yfir og forseti hyggst fara á þann fund þegar þessum óundirbúna fyrirspurnatíma er lokið. Þá verður farið yfir þinghald næstu viku og öll þessi mál tekin fyrir. Nú mun varaforseti leysa forseta sem nú er á forsetastóli af til að hann geti farið að undirbúa dagskrá næstu viku.