144. löggjafarþing — 137. fundur, 25. júní 2015.
lokafjárlög 2013.
528. mál
Forseti vill nú gjarnan að þessar umræður þurfi ekki að taka á sig leiðinlega mynd. Forseti vildi einfaldlega árétta að hann vildi halda uppi góðri reglu og vísaði til ræðu hv. þm. Vigdísar Hauksdóttur hér áðan og telur að hann hafi reynt að afgreiða málið með sanngjörnum og eðlilegum hætti.