131. löggjafarþing — 14. fundur, 21. okt. 2004.
Byggðaáætlun fyrir árin 2002–2005.
216. mál
[16:37]
samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S) (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég get kannski ekki svarað miklu um þetta tiltekna tilvik vegna þess að ég hef ekki upplýsingar um hvað þar er á ferðinni. Ég held að eðlilegast sé að leita upplýsinga hjá Símanum og fá svör sem hljóta að liggja fyrir þar. Ég hef því miður ekki upplýsingar um þetta.