háskólanemar og námsstyrkir.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Spurningin vaknaði einmitt eftir að auglýsingar frá lánasjóðnum birtust um þessa námsstyrki. Þar kom ekki fram að þessi möguleiki væri kominn inn í lögin. Það er því gott ef þessi fyrirspurn hefur orðið til þess að nú eigi að bæta úr kynningu á þessu úrræði. Það getur vel verið að þau ungmenni sem eru að hugsa sér að fara þessa leið rekist á vegg af því að þau hafa ekki upplýsingar um að nú sé þetta komið inn. Það er fagnaðarefni ef þessu verður bætt inn á heimasíðuna. Eins vænti ég þess að í næstu umferð auglýsinga frá lánasjóðnum um styrkina verði þetta þar með.