148. löggjafarþing — 14. fundur, 22. jan. 2018.
staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin framundan.
Virðulegi forseti. Eins og menn þekkja er það þannig í samsteypustjórnum að hver flokkur ber ábyrgð á sínum ráðherrum, leggur til sína ráðherra, þeir eru samþykktir sem slíkir. Á Íslandi er ekki fjölskipað stjórnvald heldur ber hver ráðherra ábyrgð á sínum málaflokki þannig að það er mjög eðlilegt.