138. löggjafarþing — 144. fundur,  16. júní 2010.

varnarmálalög.

581. mál
[17:08]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Frú forseti. Ég vil í tilefni af því að hér er verið að samþykkja þetta frumvarp um að leggja Varnarmálastofnun niður taka það skýrt fram að það er gert á þeim grundvelli að Ísland muni áfram standa við allar þær alþjóðlegu skuldbindingar sem það hefur undirgengist í öryggismálum. Ég segi já.