144. löggjafarþing — 146. fundur, 3. júlí 2015.
stöðugleikaskattur.
786. mál
Herra forseti. Hér er í raun og veru fyrst og fremst um tæknilega breytingu að ræða, þ.e. að afmarka betur að frumvarpið taki til hvers kyns uppgjörs eða lykta á slitameðferð skattskyldra aðila. Þessi breyting er þó engu að síður mikilvæg og hún spilar á við þá breytingu sem gerð er á 2. gr. í 2. tölulið breytingaskjalsins.