137. löggjafarþing — 15. fundur, 5. júní 2009.
staðan í Icesave-deilunni.
Frú forseti. Ég fagna því innilega að þjóðin hafi fengið að vita það litla sem okkur var sagt hér í morgun þrátt fyrir þann trúnað eða þann leik um trúnað sem við vorum beðin um að veita. Nú er brýnt að ræða þetta mál í þinginu og í þjóðfélaginu öllu og því legg ég til að þingfundi verði frestað.