139. löggjafarþing — 153. fundur, 11. júní 2011.
stjórn fiskveiða.
826. mál
Frú forseti. 2. gr. minna frumvarpsins hefur verið umdeild og staðið í mörgum mönnum í þingsal. Hér er horft til málamiðlunar og sáttar á þeirri leið sem farin hefur verið, en engu að síður haldið í grundvallaratriði málsins að allir leggi sitt af mörkum inn í þessa samfélagslegu hlutdeild sem svo er kölluð. Horft er til sanngirni, málamiðlunar og farsældar í þessu máli.