145. löggjafarþing — 153. fundur, 19. sept. 2016.
tillaga um þingrof og kosningar.
Forseti tekur undir það að nauðsynlegt er að tillaga af þessu taginu komi fram hið allra fyrsta. Forseta er kunnugt um að slíkt er í undirbúningi en getur auðvitað ekki á þessari stundu greint frá því hvenær slík tillaga mun líta dagsins ljós. Þetta er á forræði hæstv. forsætisráðherra, eins og hv. þingmaður rakti, en forseta er þetta ljóst og mun auðvitað beita sér fyrir því að úr þessu rætist.