fullgilding samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegi forseti. Ég fagna þessu eins og aðrir þingmenn og þakka þingheimi fyrir vinnubrögðin í þetta sinn. Ég vek athygli á því að afrakstur þess sem hefur gerst hér kemur frá þessari pontu á Alþingi. Það var samtal þingmanna í þessari pontu sem leiddi þetta af sér og auðvitað síðan önnur samtöl annars staðar í húsinu.
Ég hlakka til þess að næst þegar ég hitti einhvern á förnum vegi og heyri enn einn bölsótast yfir Alþingi ætla ég að segja honum góða sögu og það verður sagan af þessum degi.