145. löggjafarþing — 154. fundur, 20. sept. 2016.
framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2016--2019.
765. mál
Virðulegi forseti. Hér greiðum við atkvæði um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2016–2019, þá fyrstu sem lögð er fyrir Alþingi og það er mikið fagnaðarefni. Þar eru tilgreind 30 verkefni á fimm sviðum. Þau eru grunnur að samstarfi fjölmargra aðila um það mikilvæga verkefni að allir geti verið virkir þátttakendur í samfélaginu óháð þjóðerni og uppruna.