139. löggjafarþing — 156. fundur,  2. sept. 2011.

afsal varaþingmennsku.

[10:36]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá 1. varaþingmanni Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, Einar Skúlasyni, dags. 22. ágúst sl., þar sem hann segir af sér varaþingmennsku fyrir flokkinn. Samkvæmt þessu færast varamenn flokksins neðar á listanum upp um eitt sæti og 1. varaþingmaður flokksins í kjördæminu verður Guðrún H. Valdimarsdóttir hagfræðingur.