139. löggjafarþing — 157. fundur, 5. sept. 2011.
tilhögun þingfundar.
Forseti vill láta þess getið að gert verður hlé á þingfundi milli kl. 1 og 3 fyrir matarhlé og þingflokksfundi.
Forseti vill einnig geta þess að forseti króatíska þingsins, Luka Bebic, verður gestur þingsins í dag. Hann verður á þingpöllum kl. 16 og biður forseti þingmenn um að vera til staðar í þingsal er hann verður ávarpaður af þingforseta úr forsetastóli.