139. löggjafarþing — 158. fundur,  6. sept. 2011.

heimsókn formanns grænlensku landsstjórnarinnar.

[14:02]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að formaður grænlensku landsstjórnarinnar, Kuupik Kleist, er staddur á þingpöllum. Formaður grænlensku landsstjórnarinnar er hér í heimsókn í Alþingishúsinu í tengslum við opinbera heimsókn til Íslands í boði forsætisráðherra.

Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða formann grænlensku landsstjórnarinnar, Kuupik Kleist, velkominn í Alþingishúsið og ég vænti þess að heimsókn hans til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru á milli landa okkar.

Alþingi vottar formanni grænlensku landsstjórnarinnar og grænlensku þjóðinni vináttu og virðingu. Ég bið hv. alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]