varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Bjartrar framtíðar, Róberti Marshall, um að Guðmundur Steingrímsson, hv. 7. þm. Suðvest., geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Bjartrar framtíðar í kjördæminu, Freyja Haraldsdóttir. Kjörbréf Freyju hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Freyja Haraldsdóttir, 7. þm. Suðvest., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]