139. löggjafarþing — 162. fundur, 13. sept. 2011.
Stjórnarráð Íslands.
674. mál
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður svaraði ekki alveg spurningu minni. Ég spurði hann: Hver er stjórnsýslan? Eru ráðherrar ekki hluti stjórnsýslunnar? Eru stjórnmálamenn ekki yfirmenn stjórnsýslunnar? Við skulum hafa það á hreinu hér í þessu húsi og benda ekki alltaf á aðra.