138. löggjafarþing — 162. fundur, 17. sept. 2010.
málshöfðun gegn ráðherrum.
706. mál
Frú forseti. Þegar þingmannanefndin setti sér verklagsreglur um þetta mál voru þær aðgengilegar á netinu, enginn gerði athugasemd við þær fyrr en núna. Ég verð að spyrja mig hvort þetta sé einhver hráskinnaleikur hér. Mér finnst æðifurðulegt að enginn gerði (Gripið fram í.) — af hverju gerðu hv. þingmenn ekki athugasemdir við það þá? (Gripið fram í.)