139. löggjafarþing — 163. fundur,  14. sept. 2011.

fundarstjórn.

[15:28]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti mun kalla eftir upplýsingum um það sem hv. þingmaður óskaði eftir, um fjölda fyrirspurna. Forseti og skrifstofa þingsins hefur kallað eftir svörum frá ráðherrum við þeim fyrirspurnum sem hafa staðið út af. Það er svo að tveimur munnlegum fyrirspurnum er ósvarað og mun forseti sjá til þess að þeim verði svarað áður en þessu septemberþingi lýkur.