139. löggjafarþing — 164. fundur, 15. sept. 2011.
Stjórnarráð Íslands.
674. mál
Virðulegi forseti. Það er engin spurning, það er sauðnaut. Það er bundið stað og stund og hefur mestan áhuga á holtum og melum, ekki ökrum og túnum, ekki árangri heldur að þrauka eins og frændur þess forðum, mammútarnir.