138. löggjafarþing — 167. fundur, 27. sept. 2010.
málshöfðun gegn ráðherrum.
706. mál
Frú forseti. Auðvitað fór nefndin yfir þá gagnrýni sem sett var fram í þingheimi en við komumst að sömu niðurstöðu og við höfðum komist að áður, það var alveg á hreinu. Ég verð að taka það fram varðandi hvern einstakan ráðherra sem hér er til umfjöllunar að sérstaklega er tilgreint á hvaða forsendum þingsályktunartillagan er lögð fram gagnvart hverjum og einum þeirra.