138. löggjafarþing — 167. fundur, 27. sept. 2010.
málshöfðun gegn ráðherrum.
706. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Ég tel mig hafa gert fulla grein fyrir þeirri afstöðu minni í máli mínu. Ég álít svo að hæstv. fyrrverandi utanríkisráðherra hafi sem oddviti stjórnarflokks, oddviti Samfylkingarinnar, og leiðtogi hennar á erfiðum tímum tekið á sig ábyrgð annars ráðherra og mér finnst mjög eðlilegt að þegar maður gerir slíkt taki maður ábyrgð á því.