144. löggjafarþing — 17. fundur, 9. okt. 2014.
framhald umræðu um frumvarp um verslun með áfengi.
Forsetinn sagði aldrei að umræðan væri háð því að hæstv. ráðherra yrði við hana. Forseti sagði eingöngu að hann mundi koma þessum sjónarmiðum á framfæri og leita eftir því að hæstv. ráðherra yrði við umræðuna að einhverju leyti eða hluta af henni, hygg ég að hafi verið orðalag forseta.