152. löggjafarþing — 17. fundur,  27. des. 2021.

ákvörðun um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

152. mál
[16:03]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti frá hv. utanríkismálanefnd um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 388/2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

Nefndin hefur fjallað um málið. Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 388/2021 frá 10. desember 2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/168 frá 10. febrúar 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) 2016/1011 að því er varðar undanþágu fyrir tilteknar viðmiðanir fyrir stundargengi gjaldmiðla þriðju landa og tilnefningu viðmiðana í stað tiltekinna viðmiðana sem verður hætt með og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 648/2012, framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1847 frá 14. október 2021 um tilgreiningu á lögboðinni viðmiðun til að taka við af tilteknum útgáfum af CHF LIBOR-vöxtum, þ.e. LIBOR-vöxtum af svissneskum frönkum, og framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1848 frá 21. október 2021 um tilgreiningu á viðmiðun til að taka við af millibankadagvöxtum í evrum.

Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Þorgerður K. Gunnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álit þetta í samræmi við 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.

Undir nefndarálitið skrifa fulltrúar í hv. utanríkismálanefnd, hv. þingmenn: Bjarni Jónsson, formaður, Njáll Trausti Friðbertsson, framsögumaður, Birgir Þórarinsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Logi Einarsson, Jakob Frímann Magnússon, Jóhann Friðrik Friðriksson og Þorgerður K. Gunnarsdóttir.

[Ath. Þetta er framsaga fyrir nefndaráliti í 165. máli; sjá þskj. 191.]