141. löggjafarþing — 17. fundur,  11. okt. 2012.

kosningar til Alþingis og kosningar til sveitarstjórna.

180. mál
[13:54]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég þakka öllum sem hafa komið að þessu máli og líka þeim sem þrýstu á að við færum í þetta verkefni. Ég þakka innanríkisráðherra fyrir að leggja frumvarpið fram og nefndinni fyrir góða, hraða en þó vandaða vinnu.

Þetta er framfaramál en ég held að þetta sé ekki eina skrefið sem þarf að stíga. Ég held að við þurfum að fylgjast með hvernig þetta gengur og halda áfram á sömu braut.