tilkynning um embættismenn fastanefnda.
Á fundi efnahags- og viðskiptanefndar fyrr í dag var Óli Björn Kárason kjörinn formaður nefndarinnar, Jón Steindór Valdimarsson 1. varaformaður og Vilhjálmur Bjarnason 2. varaformaður.
Á fundi fjárlaganefndar fyrr í dag var Haraldur Benediktsson kjörinn formaður nefndarinnar, Hanna Katrín Friðriksson 1. varaformaður og Theodóra S. Þorsteinsdóttir 2. varaformaður.
Á fundi velferðarnefndar fyrr í dag var Nichole Leigh Mosty kjörin formaður, Vilhjálmur Árnason 1. varaformaður og Ólöf Nordal 2. varaformaður.
Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar fyrr í dag var Valgerður Gunnarsdóttir kjörin formaður, Pawel Bartoszek 1. varaformaður og Bryndís Haraldsdóttir 2. varaformaður.