149. löggjafarþing — 18. fundur, 11. okt. 2018.
þingmannamál á dagskrá og fundur í umhverfis- og samgöngunefnd.
Herra forseti. Ég tek undir orð fyrri þingmanna um þingmannamálin, að þau séu kláruð hér og ekki verið að tefja þau og ýta þeim á undan sér. Það er nóg nú þegar um það. Ég geri samt engar athugasemdir við fundarboðið í samgöngunefnd. Við erum í þinghúsinu og ég sé ekkert að því þó að samgöngunefnd fundi á milli atriða í þinginu.