stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Nú flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og fram munu fara umræður um hana sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa tólf mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.
Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi: Framsóknarflokkur, Samfylkingin, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Sjálfstæðisflokkur, Björt framtíð og Píratar.
Fyrir hönd Framsóknarflokks talar hæstv. forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, í fyrstu umferð, í annarri umferð Líneik Anna Sævarsdóttir, 5. þm. Norðaust., og í þriðju umferð hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvest., í annarri umferð Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurk., og í þeirri þriðju Helgi Hjörvar, 9. þm. Reykv. s.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða í fyrstu umferð Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykv. n., í annarri umferð Lilja Rafney Magnúsdóttir, 8. þm. Norðvest., og í þriðju umferð Árni Þór Sigurðsson, 8. þm. Reykv. n.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða í fyrstu umferð hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarni Benediktsson, í annarri umferð Haraldur Benediktsson, 4. þm. Norðvest., og í þriðju umferð hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Ragnheiður E. Árnadóttir.
Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Guðmundur Steingrímsson, 7. þm. Suðvest., í annarri umferð Björt Ólafsdóttir, 6. þm. Reykv. n., og í þriðju umferð Páll Valur Björnsson, 10. þm. Suðurk.
Fyrir Pírata tala í fyrstu umferð Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvest., í annarri umferð Jón Þór Ólafsson, 10. þm. Reykv. s., og í þriðju umferð Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykv. n.