150. löggjafarþing — 2. fundur,  11. sept. 2019.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:30]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Nú flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og fram fara umræður um hana sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu.

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir, hver þingflokkur hefur átta mínútur í fyrstu umferð, fimm mínútur í annarri umferð og fjórar mínútur í þriðju umferð en forsætisráðherra hefur 16 mínútur til framsögu.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:

Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Miðflokkurinn, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Flokkur fólksins.

Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í fyrstu umferð, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í annarri umferð og Kolbeinn Óttarsson Proppé, 6. þm. Reykv. s., í þriðju umferð.

Ræðumenn Miðflokksins verða í fyrstu umferð Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 3. þm. Norðaust., Ólafur Ísleifsson, 10. þm. Reykv. n., í annarri umferð og Birgir Þórarinsson, 3. þm. Suðurk., í þriðju umferð.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Logi Einarsson, 5. m. Norðaust., í annarri umferð Helga Vala Helgadóttir, 4. m. Reykv. n., og Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurk., í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokkinn verða Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í fyrstu umferð, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í annarri umferð og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra í þriðju umferð.

Fyrir Pírata tala Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 4. þm. Reykv. s., í annarri umferð og Björn Leví Gunnarsson, 11. þm. Reykv. s., í þriðju.

Fyrir Framsóknarflokkinn tala Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri umferð Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.

Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrstu umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðvest., í annarri Jón Steindór Valdimarsson, 13. þm. Suðvest., og í þriðju umferð Þorsteinn Víglundsson, 7. þm. Reykv. n.

Fyrir Flokk fólksins talar Inga Sæland, 8. þm. Reykv. s., í fyrstu og þriðju umferð en Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þm. Suðvest., í annarri umferð.