148. löggjafarþing — 2. fundur,  14. des. 2017.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[21:31]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf):

Herra forseti. Góðir Íslendingar. Þótt skammdegið sé nú í algleymi er um margt bjart yfir landi og þjóð. Efnahagslífið hefur verið í einhverri mestu uppsveiflu í manna minnum og hagur margra hefur batnað eftir því. Við í Flokki fólksins viljum renna stoðum undir almenna hagsæld um leið og við viljum tryggja að hún nái til allra, en sé ekki bara fyrir suma.

Enginn velkist í vafa um hverjir það eru sem standa höllustum fæti í íslensku samfélagi. Þetta eru hópar aldraðra og öryrkja — en þessir hópar eru sem kunnugt er aldrei nefndir öðruvísi en að orðið skerðingar fylgi með — barnafjölskyldur með lágar tekjur og almennt verkafólk. Flokkur fólksins lítur á það sem hlutverk sitt á Alþingi að standa vörð um hag þeirra sem höllum fæti standa og bjóða þeim viðunandi lífskjör í stað sífelldra skerðinga og afarkosta eins og nú eru uppi.

Nýrri ríkisstjórn er óskað velfarnaðar, en það sker í augu í sáttmála hennar og stefnuræðu að metnaður hennar til að bæta kjör þessara þjóðfélagshópa sýnist hóflegur svo ekki sé sterkar að orði kveðið.

Frítekjumarkið setti svip sinn á nýliðna kosningabaráttu þar sem Flokkur fólksins tók fyrstur upp málið og aðrir fylgdu á eftir. Samt á ekki að hækka frítekjumarkið úr hinum alræmdu 25 þús. kr. í nema 100 þús. kr., sem nær ekki því sem það var fyrir ári. Nýleg skýrsla gerð fyrir Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni styður þá stefnu sem við höfum boðað að óhætt sé og rétt að ganga mun lengra í þessum efnum en ríkisstjórnin áformar. Málefni öryrkja, sem allir vita að hafa setið eftir, eftir eiga að fara í nefnd eins og undangengin ár. Í heimsókn á Alþingi í dag kom af hálfu forystumanna Öryrkjabandalagsins glöggt fram réttlát reiði öryrkja og vonbrigði. Ríkisstjórnin verður að gera betur en hún boðar í málefnum öryrkja.

Enn annað dæmi um áberandi skort á metnaði er húsnæðisliður vísitölunnar. Meðan almennt verðlag eins og það er mælt af Hagstofu Íslands hefur farið lækkandi á umliðnum misserum hefur þessi húsnæðisliður hækkað verulega, sumpart vegna stefnu meiri hluta í borgarstjórn Reykjavíkur sem einkennist af lóðaskorti og tilheyrandi hækkun á fasteigna- og leiguverði. Þetta rekur sig gegnum húsnæðisliðinn og hefur valdið tilflutningi á verðmætum frá heimilum landsmanna til fjármálastofnana og skaðað húsnæðiskaupendur og leigutaka. Þessar fjárhæðir sem lagðar eru með þessum hætti á heimilin hlaupa á tugum milljarða og svara til verðmætis alls þorskafla úr sjó á hverju ári undanfarin ár. Vandamálið er viðurkennt í stjórnarsáttmála hinnar nýju ríkisstjórnar en stórhugur hennar í málinu reynist ekki meiri en svo að hún segir að hefja eigi skoðun á þessum húsnæðislið. Engar aðgerðir eru boðaðar til að fella þennan lið brott strax en látið duga að hefja skoðun.

Ríkisstjórnin sýnist hafa mörg góð áform og verður studd til góðra verka, en þessi örfáu dæmi sýna, að hún þarf á aðhaldi að halda og virkri stjórnarandstöðu. Við munum ekki draga af okkur í því efni.

Flokkur fólksins vill endurskoða viðmið sem talin hafa verið góð og gild til þessa af allt of mörgum. Hvers virði er jafnvægi í ríkisbúskapnum sem felur í sér að grunnstoðir samfélagsins eins og heilbrigðis- og menntamál séu í fjársvelti? Hvers konar jafnvægi er það sem reist er á að ríkissjóður komist ekki af nema skattleggja tekjur sem ekki duga fyrir nauðþurftum? Nýleg skýrsla Alþýðusambands Íslands frá því í sumar sýnir svart á hvítu að persónuafsláttur hefur ekki fylgt launaþróun með þeim afleiðingum að fjögurra manna fjölskylda með lágar tekjur býr við ráðstöfunartekjur sem eru vel á annað hundrað þús. kr. lægri á mánuði en ef persónufrádrátturinn hefði tekið eðlilegum hækkunum.

Flokkur fólksins hafnar sömuleiðis fjármálastöðugleika af því tagi sem felur í sér að þúsundir íslenskra foreldra séu rekin út af heimilum sínum leiðandi börn sín sér við hönd eins og gerst hefur með ömurlegum afleiðingum fyrir heilsu barnanna og velferð. Nýleg saga í þessum efnum er smánarblettur sem ekki má endurtaka sig.

Flokkur fólksins vill bjóða velkomnar heim þær þúsundir Íslendinga sem flæmst hafa af landi brott og búa á erlendri grundu. Við verðum að gera betur en bjóða þessu fólki í ískaldan náðarfaðm verðtryggingarinnar sem stappar nærri að svipta fólk fjárhagslegu sjálfstæði, svo víðtækar skuldbindingar sem hún leggur á lántaka gagnvart mun sterkari aðila sem lánveitandinn jafnan er.

Lítið ber á því í nýju fjárlagafrumvarpi að ríkisstjórnin hyggist efla löggæslu í landinu þó að í stjórnarsáttmálanum sé talað um öfluga löggæslu. Staðreyndin er sú að löggæslan hefur búið við fækkun lögreglumanna frá því löngu fyrir hrun og það á sama tíma og landsmönnum hefur fjölgað og komur ferðamanna til landsins hafa margfaldast. Þá er áberandi hve hlutur löggæslunnar úti á landi er fyrir borð borinn. Flokkur fólksins mun fylgjast vel með málefnum lögreglunnar enda er öryggi borgaranna einn af hornsteinum samfélagsins.

Að lokum, virðulegi forseti, vil ég leggja áherslu á nauðsyn þjóðarsamstöðu og átaks af hálfu stjórnvalda — ég þakka menntamálaráðherra góð orð hér rétt áðan í þessu efni — um vernd og eflingu íslenskrar tungu sem á undir högg að sækja sem aldrei fyrr. Við verðum að taka ærlega til hendinni á heimilum og í skólum landsins með aukinni rækt við menningu okkar og sögu. — Ég óska landsmönnum öllum gleðilegra jóla.