152. löggjafarþing — 2. fundur,  1. des. 2021.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[21:26]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegi forseti. Góðir landsmenn. Í ríkissáttmála þessarar ríkisstjórnar stendur m.a. að þeir ætli að vaxa til meiri velsældar í velsældarsamfélagi framtíðarinnar. Á því þarf að byggja til framtíðar og tryggja þannig forsendur til velsældar núverandi og komandi kynslóða. Við trúum því að velsæld verði best tryggð með traustum efnahag, jöfnun tækifæra og aðgerðum í þágu nýsköpunar, umhverfis og loftslags. Við styrkjum samkeppnisstöðu Íslands og aukum velsæld. Öflugt velferðarkerfi er undirstaða jöfnunar og tryggir að við getum öll blómstrað í velsæld. Á síðasta ári hefur Ísland verið í forystu fyrir alþjóðlegt samstarf um þróun velsældarmælikvarða, sagði hæstv. forsætisráðherra.

Virðulegur forseti. Góðir landsmenn. Það er komið heiti á ríkisstjórnina, velsældarríkisstjórnin. En velsæld fyrir hverja? Fyrir öryrkja? Fyrir aldrað fólk? Fyrir láglaunafólk? Fyrir börn sem búa í sárafátækt? Nei.

Hæstv. forsætisráðherra vildi ekki skipta á Íslandi í dag og Íslandi árið 2007. Frá þessum tíma hefur kjaragliðnun almannatrygginga orðið allt að 40% og kjaragliðnun heldur áfram í boði velsældarríkisstjórnarinnar. Skerðingar og keðjuverkandi skerðingar halda áfram. Fyrirhuguð 5,6% hækkun almannatrygginga skilar ekki 15.000 kr. því að eftir skatta og skerðingar og keðjuverkandi skerðingar verður ekkert eftir hjá þeim verst settu. Skerðingarofbeldið fer um almannatryggingakerfið og það yfir í félagskerfi bæjar- og sveitarstjórna, sem er ekkert annað en 100% eignaupptaka þeirra best settu hjá þeim verst settu. Öryrkjar með 65 aura á móti krónu skerðingu, sem er ekkert annað en ávísun á sárafátækt: 1% hækkun hjá öryrkjum, þvílík ofrausn, 1%, 1.500 kr. Hvað verður eftir af þeim 1.500 kr. þegar það er búið að fara í gegnum skerðingar, bæði almannatryggingakerfis og sveitarfélaga? Ekkert.

Þeir verst settu hafa beðið í nærri fimm ár og verða því miður að bíða enn eftir réttlætinu. Vonandi ekki í fjögur ár í viðbót.