140. löggjafarþing — 20. fundur, 10. nóv. 2011.
fjáraukalög 2011.
97. mál
Frú forseti. Það er mjög skýrt að forsenda Alþingis fyrir þeirri ákvörðun að ráðist yrði í gerð Vaðlaheiðarganga hefur verið sú að framkvæmdir standi undir sér að öllu leyti. Sú forsenda stendur enn og ég endurtek að lög kveða skýrt á um að framkvæmdin megi ekki fela í sér kostnað fyrir ríkissjóð. Fjármálaráðherra mun að sjálfsögðu fara að lögum.