136. löggjafarþing — 21. fundur,  6. nóv. 2008.

málefni fasteignaeigenda.

[13:34]
Horfa

Forseti (Kristinn H. Gunnarsson):

Nú fer fram áður boðuð utandagskrárumræða um málefni fasteignaeigenda. Málshefjandi er hv. þm. Birkir Jón Jónsson og félags- og tryggingamálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.