141. löggjafarþing — 22. fundur, 22. okt. 2012.
Farsýslan, stjórnsýslustofnun samgöngumála.
133. mál
Virðulegi forseti. Ég vil taka til máls um atkvæðagreiðsluna til að gera grein fyrir því að við ætlum að kalla málið inn til hv. umhverfis- og samgöngunefndar, að beiðni hv. þm. Ásbjörns Óttarssonar sem tók þátt í umræðum um það, til að fara yfir gildistökuákvæðin. Það á ekki að tefja málið.
Ég hvet alla hv. þingmenn til að styðja þetta fína mál.